Dökkur borði með titlinum „Hvernig þetta blogg er smíðað“. Til vinstri er Org-frumtexti færslunnar, til hægri fullbúna síðan og ör á milli

Hvernig þetta blogg er smíðað

11 mín. lesturAHAllister Isaiah Harvey

Hver einasta færsla á þessu bloggi er venjuleg Org-skrá og vefurinn er smíðaður af Emacs sjálfum. Þar er enginn Hugo, enginn Jekyll og enginn Node. Það er bara ein smíðaforskrift, publish.el, eitt stílsnið, ein JavaScript-skrá og stutt Python-forskrift sem athugar tengla.

Í síðustu viku skrifaði ég um hvers vegna glósurnar mínar búa í Org. Þessi færsla fjallar um hinn endann á sömu pípu: hvað gerist þegar ein af þessum skrám verður að vefsíðu, og þær fáu ákvarðanir í smíðinni sem ég stend við.

Hvers vegna ég smíðaði það svona

Org geymir nú þegar allt annað sem ég skrifa. Tungumálaglósurnar mínar búa þar og Icelandic Vocabulary óx upp úr þeim án þess að ég þyrfti fyrst að flytja þær yfir í annað snið. Ég vildi að bloggið virkaði eins: færsla er bara enn ein Org-skrá, skrifuð í sama ritli, með sömu innsláttaraðferðum fyrir íslensku, sænsku og þýsku.

Það útilokaði flesta vettvangana sem ég skoðaði, því þeir eru gerðir fyrir Markdown. Ég hefði getað skrifað í Org og flutt út í Markdown bara til að birta, en það eru of mörg hreyfanleg stykki fyrir blogg. Ég notaði Quartz lengi áður en ég byrjaði á þessu og það gengur út frá Markdown á sama hátt.

Hin ástæðan er einfaldari: mér finnst gaman að forrita og það að smíða vefinn sjálfur var hluti af aðdráttaraflinu. Færslurnar áttu því alltaf að vera Org-skrár og spurningin var hvað breytir þeim í vef. Svarið reyndist vera Emacs aftur, í gegnum org-publish.

Uppbyggingin

Verkefnið allt er nógu lítið til að komast fyrir á einum skjá:

publish.el                 Smíðaforskriftin
content/
  index.org, about.org     Heimasíðan og Um mig-síðan
  posts/foo/index.org      Færsla í sinni eigin möppu
  posts/foo/index.is.org   ...og íslenska þýðingin hennar
  posts/foo/banner.png     ...og myndirnar hennar, rétt við hliðina
  css/style.css            Stílsniðið
  js/site.js               Tækjastikan (útlit, tungumál, leit, efnisyfirlit)
scripts/check-links.py     Athugun á biluðum tenglum
.github/workflows/         Birting á GitHub Pages

Í tölum: publish.el er um 1.600 línur og 87 föll af Emacs Lisp. Stílsniðið er um 500 línur, JavaScript-ið um 370 og tenglaathugunin um

  1. Færslurnar eru fimm hingað til, hver á fimm tungumálum, sem gerir

25 færsluskrár. Þá eru ekki taldar með síðurnar Heim, Um mig, Safn, Efnisorð og 404.

Tækjastikan í þessu tré er fljótandi stikan neðst á hverri síðu. Á henni eru rofi fyrir útlit, tungumálavalmyndin, leit og efnisyfirlit, og mestur hluti JavaScript-sins snýst um hana.

Að smíða vefinn er ein skipun:

emacs --batch -l publish.el -f blog-publish

Þetta skrifar fullbúinn vefinn í public/. Í fyrstu keyrslu þarf nettengingu, því hún setur upp htmlize (til að lita kóðablokkir) og org-contrib (fyrir RSS-strauminn) frá ELPA. Til að skoða útkomuna þjóna ég möppunni með innbyggða vefþjóninum í Python á gátt 8000. Ég þarf að nota vefþjón í stað þess að opna skrárnar beint, því tenglarnir á hverri síðu miðast við rót vefsins.

Frá glósu til síðu á vefnum. Strikalínurnar sýna hvað ræsir smíðina og hvað getur stöðvað hana.
Mynd 1 Frá glósu til síðu á vefnum. Strikalínurnar sýna hvað ræsir smíðina og hvað getur stöðvað hana.

Hvað Org gerir og hverju ég bætti við

Org er þegar með útgáfukerfi, org-publish. Maður lýsir verkefni og það flytur hverja Org-skrá í möppu út í HTML. Það kemur manni langleiðina að bloggi eitt og sér.

Allt í kringum greinina er mitt: haus með titlinum, dagsetningunni og lestrartímanum, og fótur með efnisorðunum, allt að þremur tengdum færslum og tenglum á eldri og nýrri færslu. Tengdu færslurnar eru einfaldlega þær sem deila flestum efnisorðum með þeirri sem verið er að lesa. Fyrirsagnir fá líka akkeri, þannig að þegar bendillinn er settur yfir eina birtist # sem afritar tengil á þann kafla. Akkerin eru unnin úr texta fyrirsagnarinnar, ekki úr númeri, svo þau breytast ekki þótt ég breyti textanum í kring.

Ekkert af þessu er glæsilegt á þann hátt sem sniðmátamál eru glæsileg. Þetta eru Emacs Lisp-föll sem skila strengjum af HTML. En það er á máli sem ég nota allan daginn hvort sem er og færslurnar sjálfar eru áfram hreinn texti sem ég get opnað í hverju sem er.

Ein skrá fyrir hvert tungumál

Bloggið kemur út á ensku, íslensku, sænsku, japönsku og þýsku. Hver þýðing er sín eigin Org-skrá, rétt við hliðina á frumtextanum, með tungumálakóðanum á undan skráarendingunni:

posts/foo/index.org      ->  /posts/foo/
posts/foo/index.is.org   ->  /is/posts/foo/

Síða telst þýdd þegar þýðingarskráin hennar er til. Tungumálavalmyndin á tækjastikunni birtist aðeins á síðum sem eru til á fleiri en einu tungumáli og valið þitt er munað. Í fyrstu heimsókn sendir lítil forskrift þig á útgáfuna á þínu tungumáli: hún notar vistað val ef það er til, og annars fyrsta tungumálið á lista vafrans þíns sem síðan er til á. Ef ekkert passar verðurðu áfram á ensku útgáfunni.

Að bæta við tungumáli eru þrjú lítil atriði: ein lína í blog-languages, færsla fyrir orðin sem vefurinn bætir sjálfur við (Heim, Safn, „mín. lestur“) og mánaðaheitin, og svo þýddu skrárnar. Allt sem ég hef ekki þýtt fellur aftur á ensku.

Þetta kostar sitt: hver færsla er fimm skrár sem þarf að halda í takt. Hver þýðing ber sinn eigin haus, með eigin titli, lýsingu, dagsetningu, tímabelti og borða, því hver skrá er lesin ein og sér. Efnisorðin eru þau sömu og í frumtextanum, svo efnisorðasíðurnar passa saman milli tungumála. Sudoku-færslan á flest eintök af öllu. Skýringarmyndirnar í henni hafa texta inni í sér, svo hver mynd er til fimm sinnum, einu sinni fyrir hvert tungumál.

Dagsetningar og tímabelti

Þetta er sá hluti sem ég myndi verja harðast. #+DATE: færslu er lesið sem staðartími í tímabelti færslunnar sjálfrar, sem er stillt með #+TIMEZONE:. Ef færslan hefur ekkert notar það sjálfgefna gildið efst í publish.el, sem er America/Port_of_Spain.

Það þýðir að ég get flutt til annars lands án þess að nokkuð sem þegar er skrifað færist til. Nýjar færslur fá nýja tímabeltið og gamlar halda sínu. Síðan sjálf sýnir bara dagsetninguna, svo þú sæir aldrei muninn, en tímabeltið ákvarðar nákvæmt augnablik útgáfunnar, sem skiptir máli fyrir röð færslna og fyrir dagsetningarnar í RSS-straumnum.

Tímabeltið er gefið upp berum orðum í hvert sinn sem dagsetning er lesin eða birt, í stað þess að breyta tímabeltinu fyrir allt Emacs-ferlið. Sú leið krefst Emacs 27 eða nýrra. Og það er ein lítil vörn sem ég er ánægður með. Ef maður gefur Emacs tímabeltisheiti sem það þekkir ekki, meðhöndlar það það þegjandi sem UTC. Innsláttarvilla gæti sett færslu á rangan dag án nokkurrar viðvörunar. Þess vegna ber smíðin nafnið saman við tímabeltisgagnagrunn kerfisins og stoppar með villu. Ég vil miklu frekar smíð sem bilar með látum en færslu sem lendir á röngum degi.

Drög og tímasettar færslur

Bættu #+DRAFT: t við færslu, eða gefðu henni dagsetningu í framtíðinni, og hún er skilin út undan alls staðar: á vefnum, í straumunum, í leitinni, í vefkortinu, á síðunum Safn og Efnisorð, jafnvel myndirnar hennar. Til að sjá drög á meðan ég skrifa smíða ég með BLOG_DRAFTS=1.

Tímasetningin virkar vegna þess hvernig birtingin er sett upp. GitHub Actions-vinnuflæði smíðar og birtir vefinn við hvert push á main og líka einu sinni á dag klukkan 13:05 UTC. Port of Spain er fjórum tímum á eftir UTC, svo það er 09:05 hér. GitHub lofar ekki að tímasett keyrsla hefjist á nákvæmlega réttri mínútu og keyrslur geta verið seinar þegar mikið er að gera, svo færsla sem er dagsett 09:00 fer í loftið í smíð þess dags, um níuleytið. Ég get skrifað færslu daginn áður, pushað henni og látið hana birtast þegar ég vil.

Færsla með dagsetningu í framtíðinni helst utan allra smíða þar til dagsetningin er liðin.
Mynd 2 Færsla með dagsetningu í framtíðinni helst utan allra smíða þar til dagsetningin er liðin.

Leit án netþjóns

Bloggið er kyrrstæður vefur án netþjóns, svo það er ekkert sem leitarreitur getur spurt. Ég bætti við leit ef einhver vill fletta einhverju upp og hún keyrir alfarið í vafranum. Við smíði skrifar forskriftin search-index.json fyrir hvert tungumál, með titli, vistfangi, dagsetningu, efnisorðum, lýsingu og öllum texta hverrar færslu. Leitin á tækjastikunni hleður þeirri skrá í vafranum og síar hana þar. Skráin er aðeins sótt þegar smellt er í leitarreitinn, svo gestur sem aldrei leitar hleður henni aldrei niður. Þar sem hún inniheldur allan texta hverrar færslu stækkar hún með blogginu; í bili er enski textinn um 12.000 orð.

Textinn er gerður að smástöfum, broddar og önnur áherslumerki eru fjarlægð og íslenskir stafir felldir saman svo leitin passi frjálslegar. Samfellingin er einn stafur fyrir einn staf, svo staðsetning samsvörunar passar enn við upprunalega textann.

Á löngum síðum sýnir tækjastikan líka heiti kaflans sem maður er í, við hlið lítils framvinduhrings, og á síðunni Færslur er efnisorðasía. Síðan sjálf er í hlýjum gráum lit, í einum dálki, í ljósri og dökkri útgáfu. Letrið er Inter, borið fram af vefnum sjálfum, svo allir sjá sama letur og engin beiðni fer til Google. Lestrartími miðast við 230 orð á mínútu og japanska er talin í táknum, 500 á mínútu.

Athuganir áður en nokkuð fer í loftið

Python-forskriftin er um hundrað línur. Hún gengur í gegnum smíðaða vefinn, les hverja síðu og athugar alla innri tengla, myndir og #kafli-tengla. Ef einhver er bilaður hættir hún með villu og birtingarvinnuflæðið stoppar áður en nokkuð fer á netið. Hún sleppir ytri tenglum viljandi, svo hún sé fljótleg og bili aldrei vegna þess að vefur einhvers annars liggi niðri. Það á líka við um ytri myndir. Hún afkóðar þó slóðir með URL-kóðun fyrst, svo tengill með %20 eða kóðuðum staf með broddi leysist enn rétt.

Þetta er hófleg athugun og hún hefur takmörk. Ef ég endurnefni fyrirsögn breytist akkerið hennar og allir tenglar á það gamla hætta að skruna á réttan stað. Forskriftin finnur mína eigin bilaða tengla á hana. Hún getur ekki fundið þá sem aðrir hafa vistað.

Hvað það gerir ekki

  • Það keyrir ekki kóðablokkir við smíði, svo allt úttak þarf að líma inn í færsluna í höndunum.
  • Athugasemdir og vefgreining eru báðar innbyggðar, með giscus og GoatCounter, og hvort tveggja er slökkt. Ég held að skrifin mín séu ekki komin á það stig að fólk vilji skrifa athugasemdir, svo það getur beðið.
  • Ytri tenglar eru ekki athugaðir.
  • Allar þýðingar eru handvirkar. Ekkert lætur mig vita þegar enski textinn hefur breyst en sá sænski ekki.
  • Fyrsta smíð á nýrri vél krefst nettengingar.

Er það þess virði?

Ég held ekki að allir þurfi að smíða sitt eigið útgáfukerfi. Org gefur manni nú þegar góða byrjun með org-publish og fjöldi bloggkerfa krefst miklu minna viðhalds. En mér líkar að vita að skrárnar á tölvunni minni eru hin raunverulega uppspretta vefsins. Ég get opnað þær í Emacs eða hvaða öðrum ritli sem er, flutt verkefnið annað og endursmíðað allt hvenær sem ég vil. Það er sama ástæðan og fyrir því að glósurnar mínar búa í Org og fyrir mig er það þess virði að halda 1.600 lína Emacs Lisp-skrá í lagi.

Ef þú rekur líka blogg á org-publish þætti mér gaman að heyra hverju þú hefur bætt við sem ég hef ekki gert.

emacsorg-modebloggingweb

© 2026 Allister Isaiah Harvey. Smíðað með Emacs og Org mode.